2014 próf Flashcards
Fyrsta skeið í siðferðisþroskakenningu Kohlbergs einkennist af ….
- Fyrsta skeið í siðferðisþroskakenningu Kohlbergs einkennist af ….
- Reglum samfélagsins
- Félagslegum sjónarmiðum
- Sveigjanlegum siðareglum
- Sjónarmiðum einstaklingsins
- Sjónarmiðum einstaklings
Ef að 3 ára barn er með 78 stig út úr BRIGANCE þroskaskimun og 37 stig út úr fimm prófhlutum prófsins sem hafa sérstakt forspárgildi. Hvernig metur þú þessar niðurstöður?
1. Barnið er yfir viðmiðunarmörkum og yfir áhættuviðmiðunarmörkum
2. Barnið svaf illa og náði því ekki að sýna alla sína hæfileika
3. Barnið er yfir viðmiðunarmörkum en undir áhættuviðmiðunarmörkum
4. Barnið gæti hafa fengið litla örvun í uppeldi sínu
- Barnið er yfir viðmiðunarmörkum og yfir áhættuviðmiðunarmörkum
Hver af eftirfarandi fullyrðingum um sálfélagslegan þroska er ekki rétt?
1. Í gegnum samhæfingu (synchrony) lærir barn að lesa í tilfinningar annarra
2. Samkvæmt kenningu Freud skipta fyrstu 2-3 árin sköpum fyrir mótun persónuleikans og sálfélagslegan þroska
3. Samkvæmt Afferlisstefnunni mótast hegðun barna í gegnum herminám
4. Samkvæmt kenningu Erikson hefur fjölskylda, menning og umhverfi lítil sem engin áhrif á sálfélagslegan þroska
- Samkvæmt kenningu Erikson hefur fjölskylda, menning og umhverfi lítil sem engin áhrif á sálfélagslegan þroska
Hvað af eftirfaransi er ekki eitt af viðbrögðum (reflex) nýbura?
1. Grip viðbragð
2. Finnström viðbrað
3. Sog viðbragð
4. Moro viðbragð
- Finnström viðbragð
Einn af einkennandi þáttum þroska er Plasticity. Hver af eftirfarandi fullyrðingum útskýrir það best:
1. Hægt er að móta einstaklinga í ákveðið mót en þeir búa líka yfir ákveðnum varanleika
2. Skilja þarf hvert mannsbarn út frá mörgu samhengi
3. Þroski mannsins getur verið mismunandi eftir menningu
4. Þroski er ekki alltaf línulegur
- Hægt er að móta einstaklinga í ákveðið mót en þeir búa líka yfir ákveðnum varanleika
Þegar misræmi (inconsistency) einkennir samskipti umönnunaraðila og barns flokkast geðtengsl þeirra samkvæmt kenningu Mary Ainsworth sem:
1. Óreiðukennd geðtengsl
2. Örugg geðtengsl
3. Örugg geðtengsl með forðun
4. Örugg geðtengsl með mótþróa
- Óreiðukennd geðtengsl
Hver af eftirfarandi fullyrðingum um málþroska er rétt?
1. Foreldri getur örvað málþroska barna með því að segja hvað það er að gera
2. Það örvar lítt málþroska barna að byrja að tala við þau nokkra vikna gömul
3. Börn segja gjarnan fyrsta orðið um 9 mánaða aldur
4. Þegar barn er 0-3 ára skiptir meira máli að fylgjast með tjáningu en málskilningi þess
- Foreldri getur örvað málþroska barna með því að segja hvað það er að gera
Samkvæmt kenningu Lev Vygotsky um áhrif menningar og félagslegra þátta á þroska þá skaltu merkja við þá staðhæfingu sem best lýsir inntaki kenningarinnar.
1. Leiðbeinandi þarf að vera næmur á það sem barnið kann svo að nám sé árangursríkt
2. Barnið lærir að herma eftir öðrum sem eru í nærumhverfi þess
3. Lögð er áhersla á hvernig barnið vinnur með upplýsingar sem það fær
4. Barnið hefur einfalda mynd af heiminum og heldur að hann haldist óbreyttur
- Leiðbeinandi þarf að vera næmur á það sem barnið kann svo að nám sé árangursríkt
Hvað af eftirfarandi fullyrðingum skýrir best út hugtakið varðveisla (conservation)?
1. Einblínt er á einhvern einn útlitseiginleika hlutar
2. Skilningur á að magnbundnir eiginleikar breytist
3. Skilningur á að þó ásýnd hluta breytist þá breytist ekki magn þeirra
4. Skilningur á að hlutir séu óafturkræfir
- Skilningur á að þó ásýnd hluta breytist þá breytist ekki magn þeirra
Urie Bronfenbrenner lagði áherslu á það í kerfakenningunni að hver manneskja yrði fyrir áhrifum margra kerfa. Tengið saman kerfin við viðeigandi skýringar:
1. Macrosystem-A Skólinn
2. Microsystem-B Hefðir samfélagsins
3. Exosystem-C Fjölskyldan
Skólinn-C
Hefðir samfélagsins-A
Fjölskyldan-B
Merkið við þá fullyrðingu sem ekki er rétt um málþroska barna:
1. Skilningur barna á máli er iðulega meiri en fjöldi tjáðra orða
2. Barn á yfirleitt auðveldar með að bera fram samhljóða en sérhljóða
3. Heyrnarlaus börn babla með höndunum
4. Það er eðlilegt ungbarni að æfa öll möguleg málhljóð
- Barn á yfirleitt auðveldar með að bera fram samhljóða en sérhljóða
Merkið við þá fullyrðingu um hreyfiþroska sem ekki er rétt:
1. Umhverfið hefur áhrif á hreyfiþroska barna
2. Grófhreyfingar reyna á stærri vöðva líkamans
3. Tveggja mánaða gamalt barn er yfirleitt farið að grípa um hluti
4. Hreyfiþroski á sér stað alla ævi
- Tveggja mánaða gamalt barn er yfirleitt farið að grípa um hluti
Hver af eftifarandi fullyrðingum lýsir best öruggum tengslum (attachment) hjá barni samkvæmt rannsóknum Mary Ainsworth?
1. Barnið tekur ekki eftir því þegar foreldri þess fer
2. Barnið bregst ekki við foreldri þegar það kemur
3. Barnið á gott með að skoða umhverfi sitt
4. Barnið neitar að fara frá umönnunaraðila
- Barnið á gott með að skoða umhverfi sitt
Taktu afstöðu til eftirfarandi fullyrðinga um sálfélagslegan þroska: Ósönn/Sönn
1. Samkvæmt kenningu sálgreiningar skipta unglingsárin mestu fyrir mótun persónuleikans. Ó/S
- Samkvæmt kenningu Erikson veltur það á samskiptum einstaklingsins og félagslegs umhverfis hvernig honum tekst að komast í gegnum hvert þroskakrísustig. Ó/S
- Samkvæmt atferlisstefnunni er sálfélagslegur þroski stigbundinn. Ó/S
- Samhæfing (synchrony) milli barns og umönnunaraðila leggur grunninn að mannlegum samskiptum og kennir barninu að lesa tilfinningar. Ó/S
- ósatt
- Satt
- ósatt
- satt
Lilja heldur því fram að bróðir hennar sé orðinn stelpa þegar hún sér hann með spennu í hárinu. Ef marka má kenningu Jean Piaget um vitsmunaþroska, benda viðbrögð hennar til að…
1. Hún einblíni á útlitseiginleika (focus on appearences)
2. Hún gangi út frá því að heimurinn haldist óbreyttur (static reasoning)
3. Hún sé ekki búin að átta sig á varanleika hluta (object permanence)
4. Hún hafi öðlast getuna til að hugsa í fleiri en einni vídd (multidimensionalthinking)
- Hún einblíni á útlitseiginleika (focus on appearences)
Parten, Piaget og Smilansky flokkuðu leik barna. Hvað af eftirfarandi atriðum lýsir best því sem er sameiginlegt með flokkun þeirra?
1. Tákrænn leikur barna
2. Leikir þar sem að ímyndunarafl barnsins nær að njóta sín
3. Leikir þar sem yngra barn leikur við sjálft sig
4. Leikir þar sem gilda ákveðnar reglur
- Leikir þar sem að ímyndunarafl barnsins nær að njóta sín
- Ef rannsakandi er að skoða áhrif nærumhverfis á hegðun einstaklingsins. Hvaða kerfi (System) er hann þá að skoða?
- Exosystem
- Mesosystem
- Microsystem
- Macrosystem
- Microsystem
Daníel sem er tveggja ára hefur einfaldan skilning á hugtakinu „pabbi“ sem kemur fram í því þegar hann sér mann með barn þá kallar hann manninn „pabbi“. Þegar hann lærir að þessir menn eru ekki „pabbi“ hans þá upplifir hann:
1. Varðveislu (conservation)
2. Varanleika hluta (object permanence)
3. Andlegt ójafnvægi (cognitive diseqilibrium)
4. Flokkun (classification)
5. Andlegt jafnvægi (cognitive equilibrium)
3.Andlegt ójafnvægi (cognitive diseqilibrium)
Kenning Erikson gengur út frá því að grundvallar verkefni unglingsáranna sé að skapa eða öðlast:
1. Nánd
2. Heiðarleika
3. Sjálfsmynd
4. Traust
- Sjálfsmynd
Samkvæmt kenningu Piaget þá vísar vitsmunalegt jafnvægi (cognitive equilibrium) til:
1. Sérstaks stigs vitsmunaþroska
2. Andlegs jafnvægi
3. Fyrsta stigs gagnavinnsla (information processins)
4. Viss ójafnvægis sem leiðir til vaxandi vitsmuna
- Andlegs jafnvægi
Hver af eftirfarandi fullyrðingum um sálfélagslega kenningu Erik Eriksin er ekki rétt?
1. Á skólaaldri eru börn að fást við togstreituna milli framkvæmdagleði (industry) og vanmáttarkenndar (inferiority)
2. Kenningar Sigmund Freuds og Erik Erikssons eru báðar í anda sálgreiningar
3. Ungbörn þurfa að þróa með sér traust gagnvart umönnunaraðila
4. Kenningin nær yfir allt æviskeiðið
5. Sá einstaklingur á erfitt með að mynda náin tengsl við aðra ef togstreitan mikli trausts (trust) og vantrausts (mistraust) leysist ekki farsællega
6. Á aldrinum eins til þriggja ára vinda börn sér í ýmis verkefni (initiative) og upplifa sektarkennd (guilt) þegar þeim mistekst eða mæta gagnrýni
- Á aldrinum eins til þriggja ára vinda börn sér í ýmis verkefni (initiative) og upplifa sektarkennd (guilt) þegar þeim mistekst eða mæta gagnrýni
Hver er meginmunur á þroska fullbura nýbura og fyrirbura? Merkið við þá fullyrðingu sem lýsir því best:
1. Fyrirburar hafa ytri skapabarma vel vaxna yfir innri skapabarma
2. Helix eyrans er þroskaðra hjá fullbura barni
3. Fullburar hafa sléttar iljar
4. Fósturfita er sérstaklega áberandi hjá fullbura barni
- Helix eyrans er þroskaðra hjá fullbura barni
- Hver af eftirfarandi fullyrðingum um málþroska er ekki rétt:
- Barn á að geta sagt r og s þegar það er um 4 ára gamalt
- Ein kenning um málþroska barna byggist á því að barnið læri sjálft að tala
- Málskilningur er forsenda fyrir máltjáningu
- Barn sem lærir nýtt mál leitar að reglum
- Ein kenning um málþroska barna byggist á því að barnið læri sjálft að tala
Sóldís er 4 ára stúlka. Hún er á leikskóla. Hún situr við borð með Jónu sem er jafngömul henni. Þær eru að teikna og lita. Þær skiptast á litum og tala mikið saman um hvað þær séu að teikna. Sóldís er mjög einbeitt og hefur ákveðnar hugmyndir um það hvernig eigi að teikna bíl. Hún segir „pabbi minn teiknar alltaf bíla svona“. Hvernig er best að flokka leik þeirra samkvæmt Parten?
1. Þetta er tengslaleikur (associative play)
2. Þetta er ærlsaleikur (rough and tumble play)
3. Þetta er hlutverkaleikur (role play)
4. Þetta er látbragðsleikur (imaginary play)
- Þetta er tengslaleikur (associative play)