Kjalnesingasaga😉 Flashcards
(86 cards)
Hvernig eru þeir Helgi bjóla og Ingólfur Arnarson tengdir?
Helgi Bjóla var giftur dóttir Ingólfs, henni Þórnýju.
Hvaða þrjá hluti sendi Patrekur biskup Örlyg með til Íslands og hvaða verk átti
Örlygur að vinna á Íslandi?
Hann tók með sér vígðamold, járnklukku vígða, plenaríum (guðspjallabók) og hann átti að byggja kirkju.
Hér kemur strax fram að von geti verið á átökum milli heiðinna manna og kristinna.
Hverrar trúar er Helgi bjóla og hvað er sérstakt við trú hans? Hverrar trúar er Örlygur?
Helgi Bjóla er heiðinn maður en Örlygur er Kristinn. Það sem er sérstakt við Ásatrú er að þau hafa mörg goð.
Hverrar trúar voru þau Esja og förunautar hennar?
Förunautar hennar voru kristnir en Esja var forn í brögðum (heiðin)
Hvað hét bærinn sem Andríður reisti sér?
Brautarholt
Hvaða böndum tengdist Andríður þeim Þorgrími og Arngrími (sonum Helga bjólu)
Þeir voru fóstbræðralagi
Hvernig tengdist Þorsteinn þeim Helga og Vakri (Arngrímssonum)?
Þeir voru systkinabörn
Hvað var gert við fé það sem fórnað var goðunum?
Drepið og blóð þeirra sett í bikar og var svo skvett á menn og fé og kjötið borðað
Hvað var gert við menn sem fórnað var?
Drepin og steypt ofan í fen
Hvar var Búi fæddur og hvar var hann alinn upp?
Hann fæddist í Brautarholti og ólst upp í Esjubergi hjá Esju
Hvaða viðurnefni fékk Búi?
Búi hundur
Hvað var sérstakt við Kolfinn á Vatni (Elliðavatni)?
Hann var með kolsvart hár og klæddist í skringileg föt og hagar sér skringilega t.d. hann borðar börk.
Hvers vegna var Búi dæmdur sekur skógarmaður?
Hann var sekur skógarmaður vegna þess að hann vildi ekki blóta
Hvaða vopn bar Búi?
Slöngu og steina
Hvað varð til þess að Þorsteinn gat ekki haldið áfram eftirförinni?
Það kom svo mikið myrkur
Hvaða goð tignaði Þorsteinn?
Hann tignaði Þór
Hvers vegna fór Búi eftir vígið að bænum Hólum?
Hann fór til að lýsa víginu á Þorsteini á hendur sér
Nefnið fernt sem var að finna í hellinum.
Jarðlaug, matur, drykkur og föt
Hvernig voru þeir Helgi og Vakur skyldir Þorgrími?
Þeir voru bróðursynir hans
Hve marga menn hafði Þorgrímur þegar hann fór að Esjubergi?
30
Hvort þótti Þorgrími verra, sonardauðinn eða hofsbruninn?
Hofsbruninn
Hvers vegna var nær ómögulegt að leita í bænum á Esjubergi?
Húsið var fullt af reyk og ólykt
Hvernig hefndi Þorgrímur sonar síns?
Hann drap Andríð, föður Búa og fóstbróðir sinn
Hverju veitti Örn Austmaðurinn mesta athygli í Kollafirði?
Ólöfu hina vænu