Nát103 - Ö. Kafli 1-3 Fruman og efni líkamans Flashcards
(54 cards)
Hvaða tvö efni innihalda kolefni, C, en teljast samt til ólífrænna efna.
CO2 (koltvísýringur) og H2CO3
Ólífrænu efnin eru:
Innihalda ekki kolefni.
Vatn, leyst steinefni (td. Na+ Cl- K+ Ca2+ HCO3-) , föst steinefni (PO4-3), ýmsar lofttegundir (O2, CO2).
Ekki gleyma H2CO3.
Fyrsta lífræna efnið sem myndast við ljóstillífun er:
Sykrur
Rifjaðu upp einsykrur og tvísykrur (heitin):
Glúkósi + frúktósi = Súkrósi (matarsykur)
Glúkósi + galaktósi = Laktósi (mjólkursykur)
Glúkósi + glúkósi = Maltósi
Hvað einkennir einsykrur og og tvísykrur frá fjölsykrum?
Einsykrur og tvísykrur leysast vel í vatni og gefa sætt bragð.
Nefndu tvær gerðir af fjölsykrum:
Mjölvi og beðmi.
Hvað er forðanæring plantna?
Mjölvi
Hver er uppistaðan í veggjum plöntufrumna:
Beðmi
Fita er efnasamband af:
Fitusýrum og glýseróli
Fosfólípíð
Fitusýrur, glýseról OG fosfat.
Vax er:
Samheiti um stórar lípíðsameindir sem í eru fitusýrur, en þær bindast ekki glýseróli.
Almennt um stera:
Sterar eru flokkur lípíða. Í þeim eru EKKI fitusýrur. Ýmis hormón m.a. kynhormón eru sterar.
Skipta má lípíðum í tvo flokka eftir hlutverki, hvaða?
Forðafitan : Næringar- eða orkuforði. Einstaklingsbundin.
Líffærafitan : Ómissandi hluti af öllum frumum, óháð fæðu og holdarfari.
Hvaða efnafræðilegu eiginleika hafa amínósýrur?
Þær eru karboxísýrur, einkennast af karboxílhóp -COOH og hafa einnig amínóhóp -NH2
Bygging próteina er hvernig?
Langar keðjur af samtengdum amínósýrum. Tuttugu gerðir af amínósýrum mynda prótein.
Kjarnsýrur eru fjölliður úr kirnum og eru af tveimur megingerðum :
DNA og RNA
Gen eða erfðavísar eru úr DNA. Þau geyma upplýsingar um hvað?
Röð amínósýrueininga í prótínum.
Hvað er omsósa?
Flæði VATNS gegnum hálfgegndræpa himnu
Af hvaða 2 frumefnum er mest í líkömum lifandi vera?
Súrefni (O) og vetni (H)
Skortur á C vítamíni getur valdið hverju?
Skyrbjúg
Hvað eru ensím?
Prótín sem örva hraða efnahvarfa, getur bæði örvað sundrun eða samtengingu viðfangsins. Á því er hvarfstaður sem tengist hvarfefninu.
Hvað finnst í dýrafrumu en ekki plöntufrumu?
Deilikorn
Hvað finnst í plöntufrumu en ekki í dýrafrumu?
Frumuveggur (utan um frumuhimnuna til að styrkja hana) og grænukorn (tengjast ljóstillífun).
Hvatberar:
Tvær frymishimnur, innri í fellingum. Eini hluti frumunar sem tekur til sín súrefni. Bruninn/öndun frumunnar fer fram í Hvatberum.