Sagnorð Flashcards
(34 cards)
Hver er þátið sagnanna?
Líta, bíta, skíta
Leit, beit, skeit
Hver er nútíð sagnanna
Fór, tók, dó
Fara, taka, deyja
Sagnorð fallbeygjast ekki.
Rétt eða rangt?
Rétt
Sagnorð hafa ekki kyn.
Rétt eða rangt.
Rétt.
Hvert er aðaleinkenni sagnorða?
Þau tíðbeygjast.
Hafa bæði nútíð og þátíð
Hvað er átt við að sagnir hafi persónu?
Þær eru ólíkar eftir því hver persónan er.
T.d. Ég hleyp, þú hleypur, hann, hún, það hleypur.
Hvað er ópersónuleg sögn?
Sögn sem breytist ekki þótt persónan breytist. (Sjaldgæft)
T.d. Mig langar, þig langar, hann langar, okkur langar.
Er sögnin að kaupa persónuleg eða ópersónuleg.
Hún er persónuleg.
Breytist ef skipt er um persónu.
Ég kaupi, við kaupum, hann kaupir…
Hvað er áhrifssögn?
Sögn sem stendur með fallorða og beygir það.
Ég sparka bolta (þf.)
Sparka er áhrifssögn.
Hvað er áhrifalaus sögn?
Sögn sem ekki getur beygt fallorð. (Sjaldgæft)
Sörli er hestur (nf.)
Er er áhrifslaus.
Hvað er hjálparsögn?
Sögn sem stendur með annarri sögn.
Ég HEF verið plataður.
Hef er hjálparsögn. Verið er aðalsögn.
Hverjar eru hjálparsagnirnar í íslensku?
Hef, mun, vera
Hverjar eru myndir sagna?
Germynd, miðmynd, þolmynd.
Ég keypti bíl.
Í hvaða mynd er keypti?
Germynd
Bíllinn var keyptur.
Í hvaða mynd er keyptur.
Þolmynd
Bílarnir rákust á.
Í hvaða mynd er rákust.
Miðmynd.
A hvaða stöfum enda sagnir í miðmynd?
-st
Kysstust, hittust, létust…
Hvað hafa sagnir marga hætti?
Sex
Í hvaða tvo flokka skiptast hættir sagna?
Persónuhætti og fallhætti.
Hver er munurinn á persónuháttum og fallháttum?
Sagnir í persónuháttum breytast ef skipt er um persónur en það gerist ekki í fallháttum.
Hverjir eru persónuhættirnir þrír?
Framsöguháttur, viðtengingarháttur, boðháttur.
Hverjir eru fallhættirnir þrír?
Lýsingarháttur nútíðar,
Lýsingarháttur þátíðar
Nafnháttur
Hvenær er sögn í nafnhætti?
Þegar AÐ er fyrir framan hana.
Að detta.
Hvenær er sögn í lýsingar hætti nútíðar?
Þegar hún endar á -andi
Hlæjandi, festandi, kaupandi…