Næringafræði Flashcards
(26 cards)
Hvað er heilbrigði?
Líkamlegt, andlegt og félagslegt jafnvægi.
Af hverju þurfa lífverur vatn?
Fyrir efnaskipti, flutning efna og kælingu.
Hvaða næringarefni fáum við með fæðu?
Kolvetni, fita, prótein, vítamín, steinefni og vatn.
Hver eru orkuefnin í fæðu?
Kolvetni, fita og prótein.
Hlutverk kolvetna?
Gefa orku.
Í hvaða hópa skiptast kolvetni?
Einsykrur, tvísykrur, fjölsykrur.
Dæmi og hlutverk sykra:
Glúkósi (ein) – orka, maltósi (tví) – meltanlegt, mjölvi (fjöl) – orkuforði.
Úr hvaða mat færum við kolvetni?
Brauð, pasta, hrísgrjón, ávextir.
Hlutverk fitu?
Orkuforði, vernd, hormón.
Hvaðan fáum við fitu?
Smjör, olía, kjöt, hnetur, ostur.
Hvernig er þríglýseríð byggt?
1 glýseról + 3 fitusýrur.
Hvað eru mettuð, ómettuð og transfita?
Mettuð: engin tvítengi. Ómettuð: eitt eða fleiri tvítengi. Trans: breytt ómettuð fita.
Dæmi um fæðu: mettuð, ómettuð, transfita
Mettuð: smjör, ómettuð: ólífuolía, trans: unnar vörur.
Hlutverk próteina?
Vöxtur, viðhald, ensím.
Grunneining próteina?
Amínósýrur.
Hvað fæst prótein úr?
Kjöt, fiskur, baunir, egg.
Hvað er lífsnauðsynleg amínósýra?
Amínósýra sem líkaminn getur ekki myndað sjálfur.
Hvað eru lífsnauðsynlegar fitusýrur?
Fitusýrur sem við verðum að fá úr fæðu (ómega-3 og 6).
Hvað eru vítamín?
Lífræn efni nauðsynleg í litlu magni.
Fituleysanleg og vatnsleysanleg vítamín?
Fituleysanleg: A, D, E, K. Vatnsleysanleg: B og C.
Hlutverk vítamína?
A: sjón
D: bein
E: frumur
K: blóðstorknun
B: orkubúskapur
C: ónæmi, járnupptaka
Hvað eru steinefni og hlutverk þeirra?
Ólífræn næringarefni – bein (kalk), skjaldkirtill (joð), blóðrauði (járn).
Skortseinkenni helstu næringarefna?
Kalkskortur: beinþynning
Joðskortur: skjaldkirtilsstækkun
Járnskortur: blóðleysi
D-vítamínskortur: beinkröm
Helstu ráðleggingar um mataræði?
Fersk, fjölbreytt fæða; mikið af grænmeti, heilkorni, fituminni mjólk og fisk.