Flóttamenn og hælisleitendur Flashcards

(7 cards)

1
Q

Hverjar eru ástæður fólksflutninga?

A

Ástæður fólksflutninga eru fjölmargar. Sumir flytjast búferlum vegna matarskorts, aðrir vegna bágs
efnahagsástands og aðrir vegna vopnaðra átaka. Sumu fólki er ekki vært í heimalandi sínu vegna
ofsókna af hendi yfirvalda eða annarra aðila.

How well did you know this?
1
Not at all
2
3
4
5
Perfectly
2
Q

Á hvað kveður Dyflinarreglugerðin?

A

Hún kveður á um hvaða ríki beri að taka við afgreiðslu umsóknar um hæli. Felur þetta í sér að þó að umsækjandi sæki um hæli á Íslandi þá getur verið að annað ríki beri ábyrgð á umsókn hans samkvæmt ákvæðum
Dyflinarreglugerðarinnar. Venjulega verður viðkomandi umsækjandi sendur til þess ríkis þar sem umsókn hans verður tekin til umfjöllunar, að því uppfylltu að það ríki sem á í hlut samþykki endurviðtöku.

How well did you know this?
1
Not at all
2
3
4
5
Perfectly
3
Q

Hvenær er maður skilgreindur flóttamaður?

A

Flóttamaður er sá sem er utan við heimaland sitt og af ástæðuríkum ótta við að verða ofsóttur vegna kynþáttar, trúarbragða, þjóðernis, aðildar í sérstökum
félagsmálaflokkum, eða stjórnmálaskoðana, og getur ekki eða vill ekki, vegna slíks ótta, færa sér í nyt vernd þess lands. Flóttamaður getur einnig verið sá sem er ríkisfangslaus, og er utan þess lands, þar sem hann hafði reglulegt aðsetur, vegna ofsókna og getur ekki eða vill ekki, vegna ótta við slíka atburði, hverfa aftur þangað.

How well did you know this?
1
Not at all
2
3
4
5
Perfectly
4
Q

Hver er munurinn á hælisleitanda og flóttamanni?

A

Þegar einstaklingur sækir um hæli utan eigin ríkis er hann í fyrstu skilgreindur sem hælisleitandi af stjórnvöldum viðkomandi ríkis. Með umsókn sinni um hæli er viðkomandi einstaklingur að biðja um viðurkenningu á stöðu sinni sem flóttamaður. Ef stjórnvöld fallast á réttmæti slíkrar umsóknar þá fær einstaklingurinn viðurkenningu á stöðu sinni sem flóttamaður samkvæmt
flóttamannasamningi Sameinuðu þjóðanna.

How well did you know this?
1
Not at all
2
3
4
5
Perfectly
5
Q

Hvenær er bannað að brottvísa hælisleitanda eða flóttamanni úr landi?

A

Óheimilt er að endursenda hælisleitenda eða
flóttamann til síns heima, eða til annars ríkis, ef ljóst er að þeir eigi á hættu að verða fyrir pyndingum, lífláti eða annarri ómannúðlegri meðferð.

How well did you know this?
1
Not at all
2
3
4
5
Perfectly
6
Q

Hver er tilgangur flóttamannasamningsins?

A

Að gefa þeim einstaklingum sem ekki njóta verndar gegn ofsóknum í eigin landi kost á því að leita verndar hjá öðrum þjóðum. Samningurinn kveður á um vernd til handa þeim sem eru í hættu vegna kynþáttar, trúarbragða, þjóðernis, aðildar í sérstökum félagsmálaflokkum eða stjórnmálaskoðana. Ofsóknir geta verið af ýmsum toga: Fólk leitar ásjár utan heimalands af ótta við kynbundið ofbeldi s.s. kynfæralimlestingu eða heiðursmorð; börn flýja nauðungarvinnu og barnahermennsku; fólk er ofsótt vegna kynhneigðar eða vegna þess að það tilheyrir tilteknum trúarhópi eða kynþætti, svo fátt eitt sé nefnt.

How well did you know this?
1
Not at all
2
3
4
5
Perfectly
7
Q

Hvers konar aðstoð fá kvótaflóttamenn?

A

Einstaklingur sem fær stöðu flóttamanns nýtur verndar og tiltekinna réttinda í hælislandinu. Þeir flóttamannahópar sem hingað koma fá ýmsa aðstoð til að verða virkir þátttakendur í íslensku samfélagi. Í byrjun stendur flóttamönnum til boða fjárhags- og húsnæðisaðstoð, heilbrigðisþjónusta, aðgangur að skólakerfinu, túlkaþjónusta og aðstoð við atvinnuleit. Þá hefur kerfi stuðningsfjölskyldna reynst afar vel en sjálfboðaliðar á vegum Rauða kross Íslands eru flóttafólkinu til halds og traust meðan það aðlagast aðstæðum í nýju landi.

How well did you know this?
1
Not at all
2
3
4
5
Perfectly