Fjallið um þóknun skiptastjóra Flashcards
(8 cards)
Almennt:
- Skiptastjóri á rétt til þóknunar fyrir störf sín við skiptastjórn sbr. 2. mgr. 77. gr. gþl.
- Skiptastjóri á að segja frá því á skiptafundi hvernig hann ætlar að reikna þóknun sína og hann má aldrei ganga á hlut rétthærri kröfuhafa á hendur búinu.
Hvað segja gþl um hvernig þóknun skiptastjóra er reiknuð ?
a) Gjaldþrotalög segja ekkert um hvernig þóknun skiptastjóra er reiknuð eða hver hafi eftirlit eða ákvörðunarvald um hana. Þetta er vegna þess að skiptastjóri gegnir störufm sínum í þágu þrotabúsins og á kostnað þrotabúsins og ráðningarkjör hans ráðast af því sem verður ákveðið hverju sinni eða annarra venja í framkvæmd.
Hvaðan greiðist þóknunin ?
b) Þóknunin greiðist af búinu sjálfu ef eignir þess duga til greiðslu skiptakostnaðar eða af þeim sem ábyrgist greiðslu skiptakostnaðar skv. 2. mgr. 66. gr. gþl. Þegar skiptabeiðandi leggur fram kröfu um gjaldþrotaskipti ábyrgist hann greiðslu skiptakostnaðar og leggur fram tryggingu fyrir honum. Ákveði skiptastjóri að taka sér greiðslu af fé búsins upp í áfallna þóknun á meðan á skiptum stendur, ber honum að kynna ákvörðun um það fyrir skiptafundi sem er réttilega boðaðu
Hvenær fær skiptastjóri greitt ? (tveir möguleikar)
- Almennt við lok skipta en í 2. málsl. 2. mgr. 77 gr. gþl. er heimild fyrir skiptastjóra til að greiða sér af fé búsins á meðan á skiptum stendur.
g) Skiptastjóri þarf að kynna þessa ákvörðun á skiptafundi og það teljsti tryggt að hann gangi ekki á hlut þeirra sem eiga rétthærri kröfur á hendur búinu. Ef skiptastjóri hefur ekki tilkynnt um þetta á skiptafundi má hann ekki taka að sér greiðsluna.
i. Hér er nægilegt að skiptastjóri geri skiptafundi grein fyrir að hann vilji frá greiðslu með rglubundnu millibili svo þeir sem hafi hagsmuni af skiptunum geti fylgst með því að þa ðsé ekki farið fram úr því sem skiptastjóri kynnti þeim, í síðasta lagi þegar úthlutunargerð í þrotabúi liggur fyrir.
ii. Það þarf að tryggja að kröfuhafar fái tækifræi til að segja skoðanir sínar á þessari ákvörðun og veita þeim tækifæri til þess að mótmæla henni og fá úrlausn héraðsdómara um hana skv. reglum gþl.
Hvað ef kröfuhafi mótmælir þóknun ?
- Vilji kröfuhafi mótmæla þóknun skiptastjóra, ber honum að gera það á skiptafundi.
a) Ákvörðunin um fjárhæð þóknunar er þess vegna tekin af skiptastjóra og þrotabúi.
i. Lánadrottnar eiga að gæta hagsmuna búsins á skiptafundum og láta fara fyrir dóm ef þörf krefur, sjá 128 gr gþl. en 171 gr gþl veitir skiptastjóra heimild til að leita til hérasðdóms með ágreiningsatriði vegna skiptanna. Lánadrottnar geta mótmælt frumvarpi til úthlutunar úr þrotabúinu þar sem þóknunarfjárhæð kemur fram, sjá 5 mgr 160 gr gþl.
⎻ Í Hrd. 423/1996 var þóknun sem skiptastjóri ætlaði að greiða sér lækkuð verulega. Í gögnum málsins lá ekki fyrir að skiptastjóri hefði kynnt kröfuhöfum þrotabúsins að störf hans við skiptastjórn gætu orðið umfangsmeiri en búast mætti við í ljósi aðstæðna og hvaða aðferðum hann ætlaði að beita við ákvörðun þóknunar í ljósi aðstæðna, gagnstætt 2 málsl 2 mgr 77 gr gþl. Kröfuhafar lögðu því traust á að störf skiptastjóra yrðu ekki tímafrekari en gera mátti ráð fyrir því eina eign búsins var fiskiskip og andvirði þess nægði bara til greiðslu fyrir veðkröfur sjúkrakostnaðar. Hæstiréttur sagði að þótt að gþl segðu ekki beinlínis hvernig ætti að ákvarða þóknun skiptastjóra hefðu kröfuhafar mátt treysta því fyrst þeim var ekki kynnt annað að endurgjald fyrir hverja vinnustund væri hæfilegt. Kröfuhafar máttu líka treysta því vegna 2 mgr 77 gr gþl að þegar fjallað yrði um frumvarp til úthlutunar ætti þrotabúið óskerta fjárhæð sem skiptastjóri teldi sig bera í þóknun. Fruwmvarpi til úthlutunar í þrotabúinu var breytt þannig að kostnaður vegna skiptastjórnar var lækkaður úr rúmum 9 milljónum í rúmar 2,5 milljónir
Hrd. 423/1996, Bú með aðeins fiskiskip
⎻ Í Hrd. 423/1996 var þóknun sem skiptastjóri ætlaði að greiða sér lækkuð verulega. Í gögnum málsins lá ekki fyrir að skiptastjóri hefði kynnt kröfuhöfum þrotabúsins að störf hans við skiptastjórn gætu orðið umfangsmeiri en búast mætti við í ljósi aðstæðna og hvaða aðferðum hann ætlaði að beita við ákvörðun þóknunar í ljósi aðstæðna, gagnstætt 2 málsl 2 mgr 77 gr gþl. Kröfuhafar lögðu því traust á að störf skiptastjóra yrðu ekki tímafrekari en gera mátti ráð fyrir því eina eign búsins var fiskiskip og andvirði þess nægði bara til greiðslu fyrir veðkröfur sjúkrakostnaðar. Hæstiréttur sagði að þótt að gþl segðu ekki beinlínis hvernig ætti að ákvarða þóknun skiptastjóra hefðu kröfuhafar mátt treysta því fyrst þeim var ekki kynnt annað að endurgjald fyrir hverja vinnustund væri hæfilegt. Kröfuhafar máttu líka treysta því vegna 2 mgr 77 gr gþl að þegar fjallað yrði um frumvarp til úthlutunar ætti þrotabúið óskerta fjárhæð sem skiptastjóri teldi sig bera í þóknun. Frumvarpi til úthlutunar í þrotabúinu var breytt þannig að kostnaður vegna skiptastjórnar var lækkaður úr rúmum 9 milljónum í rúmar 2,5 milljónir.
Hvað ef það verður ágreiningsmál milli skiptastjóra og kröfuhafa varðandi þóknun ?
Úr getur orðið ágreiningsmál sem skiptastjóra er skylt að beina til héraðsdóms, náist ekki að jafna ágreininginn á ágreiningsfundi, sbr. 3. mgr. 128. gr. gþl.
Afhverju á skiptastjóri að tilkynna um áfallinn kostnað og þóknun á skiptafundi ?
Rökin fyrir því að skiptastjóra beri að tilkynna um áfallinn kostnað og þóknun sína á skiptafundi, eru þau að þá gefst kröfuhöfum tækifæri til þess, eftir atvikum, að mótmæla eða koma með athugasemdir um þóknunina. Fjárhæð þóknunar skiptastjóra byggist oftast nær á unnum tímum samkvæmt tímaskýrslu og tímagjaldi sem skiptastjóri ákveður. Almennt er miðað við almenna verðskrá lögmannsins. Skiptastjóra ber að tilkynna kröfuhöfum tímagjald sitt og eftir atvikum hvort skiptastjóri áskilji sér rétt til að taka sér hagsmunatengda þóknun. Skiptastjóri bókar því í fundargerð skiptafundar um áfallinn kostnað, tímagjald sitt og eftir atvikum starfsmanna hans og hvort þóknun verði greidd jafnóðum á meðan skiptum stendur.