Gerið grein fyrir áhrifum úrskurðar um gjaldþrotaskipti. Flashcards

(9 cards)

1
Q

Í hverju felast gjaldþrotaskipti ?

A

72- 74 gr gþl.

Skuldari er sviptur með dómsúrskurði umráðum og ráðstöfunarrétti yfir eignum sínum og öðrum fjárhagslegum réttindum. Þau eru falin lögpersónu sem er þrotabú skuldarans sbr. 72. gr. gþl.

  1. Hugtakið er notið um sameiginlega fullnustugerð allra kröfuhafa þrotamanns sem hefst við uppkvaðningu dómsúraskurðar um skiptin (ath getur líka verið að beiðni skuldara)

a) Reglur gjaldþrotaskiptalaga, aðallega 72 gr leiða til þess að við uppkvaðningu þessa dómsúrskurðar verður til sjálfstæð lögpersóna, þrotabú

b) Þrotabúið tekur við réttindum og skyldum þrotamanns, lýtur stjórn skiptastjóra með þátttöku lánadrottna

How well did you know this?
1
Not at all
2
3
4
5
Perfectly
2
Q

Markmið

A

markmið gjaldþrotaskiptanna er að fá handhafa opinbers valds til þess að knýja skuldarann til efnda - það þýðir að leysa upp þrotabúið til þess að greiða kröfuhöfum andvirði eigna þess að því marki sem það nægir til greiðslu þeirra.

Sérstök fullnustugerð fer almennt fram í þágu einstaks kröfuhafa eða einstakra kröfuhafa skuldara en hagsmuna annarra kröfuhafa er venjulega ekki gætt en hér er jafnræði kröfuhafa mikilvægt.

Andvirði eigna þrotabúsins er varið til greiðslu skulda þrotabúsins.
a) Fullnustugerðin beinist að þrotabúinu en ekki lögpersónunni/einstaklingnum/ stofnuninni

How well did you know this?
1
Not at all
2
3
4
5
Perfectly
3
Q

Áhrif úrskurðar um gjaldþrotaskipti

A

72 - 74 gr gþl.

Um leið og úrskurðurinn er kveðinn upp verður til sjálfstæð lögpersóna, þrotabú skuldarans sem er kennt við einstaklinginn, félagið eða stofnunina.

a) Lögpersónan tekur við fjárhagslegum réttindum og skyldum þrotamannsins, sjá 1. og 2. mgr. 72. gr. gþl.
b) Lögpersónan nýtur rétthæfis til að baka sér réttindi og skyldur, 3. mgr. 72. gr. gþl.
c) 1. mgr. 99 gr. gþl; Allar kröfur á hendur þrotabúi falla sjálfkrafa í gjalddaga við uppkvaðningu úrskurðar um gjaldþrotaskipti án tillits til fyrri samninga, ákvarðana u mgjalddaga eða réttarreglna sem gæti reynt á. Ástæðan fyrir þessu er m.a. að hafa einn og sama mælikvarða á almennum kröfum til þess að jafnræði milli kröfuhafa sé tryggt.
d) Öll fjárhagsleg réttindi sem tilheyra þrotamanninum renna sjálfkrafa til þrotabúsins, sjá 1. mgr. 73 gr. fyrir utan nánar tilgreind réttindi.
e) Skiptastjóri einn má baka þrotabúi skuldbindingar eftir uppkvaðningu úrskurðar um gjaldþrotaskipti, eða einhver sem hann hefur veitt umboð til þess.
i. Kostnaður sem er stofnað til af öðrum en skiptastjóra fellur ekki undir 110 gr. um skiptaskotnað, sjá Hrd. 302/2007.
ii. Reglan er áréttuð í 1 og 2 mgr 74. gr. en undantekningar eru þegar þrotamanni tæmist arfur og þar sem þriðji maður getur áunnið rétt gagnvart þrotabúinu
f) Gjaldþrotaskipti eru skráð á vanskilaskrá í 2 ár og hafa neikvæð áhrif á lánshæfismat.

How well did you know this?
1
Not at all
2
3
4
5
Perfectly
4
Q

Skiptastjóri framkvæmir eignakönnun

A

Skiptastjóri á að athuga hvaða réttindi og eignir falla til búsins.

Hann getur stuðst við skattframtöl þrotamanns.

Hlutbundin réttindi eða kröfuréttindi, skiptastjóri passar þetta. Skiptastjórar senda bönkum og fjármálastofnunum tilkynningu um leið og búið er tekið til skipta, 82 gr gþl. Mikilvægt til að koma í veg fyrir að greitt verði út af reikningum og koma í veg fyrir innborganir inn á þá.

Umfang eignakönnunar fer eftir aðstæðum og starfsemi skuldara.

Skiptastjóri innheimtir útistandandi kröfur og passar hvort ógreidd hlutafjárloforð séu til staðar, þau falla ekki niður þótt bú sé tekið til gjaldþrotaskipta.

Í Hrd. 147/1990, hlutafélagið Strandir, var krafist þess að greiddar yrðu eftirstöðvar hlutafjárloforðs, um 600.000 kr. Stefndi var einn hluthafa í félaginu Strandir. Þegar Strandir hf. fór í gjaldþrot var farið að athuga eignir félagsins og þá sást að tveir hluthafar skulduðu búinu hlutafé . Því var höfðað mál gegn stefnda fyrir hönd þrotabúsins vegna innheimtu á ógreiddu hlutafé. Stefndi var dæmdur til þess.

How well did you know this?
1
Not at all
2
3
4
5
Perfectly
5
Q

Hverju getur þrotamaður haldið ?

A

Ef þrotamaður er einstaklingur geta réttarreglur séð til þess að hann haldi ákv. réttindum. Sjá 6. kafla aðfararlaga.

Hrd 426/2008. Bú einstaklings var tekið til gjaldþrotaskipta og deilt um hvort búseturéttur í húsnæðissamvinnufélagi teldist til réttinda sem þrotabú tæki við skv. 72 gr gþl. Hvergi í lögum um húsnæðissamvinnufélög var bann við því að búseturéttur gæti verið andlag fjárnáms. Farið yfir ýmis skilyrði og niðurstaðan var m.a. að þar sem aðilaskipti geta orðið að búseturétti væru þetta réttindi sem hefðu fjárhagslegt gildi og það var ekki talið að þetta væri persónubundin réttindi eins og eru undanskilin fjárnámi í 49 gr afl. Fallist á viðurkenningarkröfu um að þrotabú geti tekið við búseturétti þrotamanns og fengið réttinn seldan.

  1. Eðli réttindanna getur leitt til þess, td persónulegt eðli réttindanna eða sú aðstaða að þriðji maður þurfi ekki að þola að annar en þrotamar njóti réttinda sem beinast að honum
  2. Löggerningur getur mælt fyrir um að gjaldþrotaskipti hafi ekki áhrif á ákveðin réttindi
How well did you know this?
1
Not at all
2
3
4
5
Perfectly
6
Q

Hrd 181/2010, Skuldari átti pening og sumarhúsalóðir

A

Lánardrottnar kröfðust gjaldþrotaskipta hjá skuldara á grundvelli árangurslauss fjárnáms. Samkvæmt 1 mgr 71 gr gjaldþrotalaga átti héraðsdómari að gæta þess hvort lagaskilyrði væru fyrir gjaldþrotaskiptunum. Sóknaraðili gat lagt fram gögn sem sýndu fram á það að hann ætti eignir að verðmæti yfir 400 milljónir auk 113 sumarhúsalóða. Eignirnar væru háðar veðböndum en því voru ekki til staðar skilyrði til að ljúka fjárnáminu án árangurs. Gerðin gaf ekki rétta mynd af fjárhag sóknaraðila sbr 1 töl 2 mgr 65 gr gþl. Héraðsdómur hefði því átt að hafna kröfu lánadrottna um gjaldþrotaskipti og kærði úrskurðurinn því felldur úr gildi

How well did you know this?
1
Not at all
2
3
4
5
Perfectly
7
Q

Hrd. 147/1990, hlutafélagið Strandir

A

Í Hrd. 147/1990, hlutafélagið Strandir, var krafist þess að greiddar yrðu eftirstöðvar hlutafjárloforðs, um 600.000 kr. Stefndi var einn hluthafa í félaginu Strandir. Þegar Strandir hf. fór í gjaldþrot var farið að athuga eignir félagsins og þá sást að tveir hluthafar skulduðu búinu hlutafé . Því var höfðað mál gegn stefnda fyrir hönd þrotabúsins vegna innheimtu á ógreiddu hlutafé. Stefndi var dæmdur til þess.

How well did you know this?
1
Not at all
2
3
4
5
Perfectly
8
Q

Dæmi um löggerning sem segir að gjaldþrotaskipti hafi ekki áhrif á handhöfn réttinda

A

Þinglýstur gjafagerningur sem undanskilur það gefna frá fullnustu skuldheimtumanna

How well did you know this?
1
Not at all
2
3
4
5
Perfectly
9
Q

Hrd 426/2008. Búseturéttur í húsnæðissamvinnufélagi

A

Hrd 426/2008. Bú einstaklings var tekið til gjaldþrotaskipta og deilt um hvort búseturéttur í húsnæðissamvinnufélagi teldist til réttinda sem þrotabú tæki við skv. 72 gr gþl. Hvergi í lögum um húsnæðissamvinnufélög var bann við því að búseturéttur gæti verið andlag fjárnáms. Farið yfir ýmis skilyrði og niðurstaðan var m.a. að þar sem aðilaskipti geta orðið að búseturétti væru þetta réttindi sem hefðu fjárhagslegt gildi og það var ekki talið að þetta væri persónubundin réttindi eins og eru undanskilin fjárnámi í 49 gr afl. (við mat á því var talið að til staðar yrðu að vera skilyrðu um aðgerðarþola hefði verið veitt réttindin á þeim grundvelli að hannn nyti þeirra en enginn annar). Því fallist á viðurkenningarkröfu um að þrotabú geti tekið við búseturétti þrotamanns og fengið réttinn seldan.

How well did you know this?
1
Not at all
2
3
4
5
Perfectly