Gerið grein fyrir þeim hæfisskilyrðum sem gilda um skiptastjóra Flashcards
(11 cards)
Almennt, hver skipar, hvar finnum við þetta í lögunum ?
kröfuhafa eða þrotamanns. Hins vegar þarf dómari að fara eftir hæfisreglu í 2. mgr. 75 gr.
a. Það tengist meginreglunni um jafnræði kröfuhafa, því yrði raskað töluvert ef skiptabeiðandi gæti haft áhrif á val á skiptastjóra.
i. Héraðsdómara er heimilt að krefja skiptastjóra um tryggingu eða skilríki um að hann sé ábyrgðartryggður vegna starfans, sbr. 6. mgr. 75. gr. gþl. Héraðsdómari hefur heimild til að gefa skiptastjóra frest til að leggja fram tryggingu, eftir að skipun hefur átt sér stað, sbr. 6. mgr. 75. gr. gþl. Leggi skiptastjóri ekki fram tryggingu innan áskilins frests, er héraðsdómara skylt að víkja skiptastjóra úr starfi, sbr. 3. málsl. 2. mgr. 76. gr. gþl. Eftir að skiptastjóri hefur verið skipaður, öll gögn send til hans rafrænt og skiptatrygging lögð inn á fjárvörslureikning hans, hefur héraðsdómur litla sem enga aðkomu að skiptunum, að undanskildu eftirlitshlutverki skv. 76. gr. gþl. og úrlausn ágreiningsmála.
b. Héraðsdómari skipar einstakling sem uppfyllir hæfisskilyrði og er skráður skiptastjóralista sem dómstólarnir halda í samræmi við leiðbeinandi reglur dómstólasýslunnar um skipun skiptastjóra og umsjónarmanns með nauðasamningsumleitunum nr. 2/2019.
c. Með vísan til 2. mgr. 75. gr. gþl. verður talið að sú skylda hvíli á héraðsdómara að athuga hæfi skiptastjóra, áður en viðkomandi er skipaður. Skylda til að upplýsa héraðsdómara um hæfi sitt gildir áfram, eftir að einstaklingur hefur verið skipaður í starf skiptastjóra.
Markmið reglanna um hæfi skiptastjóra
Reglur um hæfi skiptastjóra eiga að tryggja að skiptastjóri sé hlutlaus í sínum störfum gagnvart þrotamanni, kröfuhöfum sem og öðrum og eigi enga persónulega hagsmuni undir við skiptin.
a. Það er forsenda fyrir skipun skiptastjóra í þrotabúum, að sá einstaklingur sem skipa á sem skiptastjóra, sé tilbúinn að taka starfið að sér. Séu annir hans slíkar eða aðrar ástæður fyrir því að hann geti ekki tekið að sér skiptastjórn, þá er honum frjálst að skorast undan því.
i. Héraðsdómara er rétt að tilgreina helstu aðila sem kunna að vera kröfuhafar í þrotabúinu í samskiptum við þann aðila sem skipa á sem skiptastjóra. Upplýsingar um hugsanlega kröfuhafa kann að vera að finna í kröfu um gjaldþrotaskipti. Þannig getur viðkomandi betur gætt að hæfi sínu.
b. Skiptastjóra ber að gæta að hæfi sínu og upplýsa héraðsdómara ef uppi eru aðstæður sem gera viðkomandi vanhæfan til að gegna störfum skiptastjóra eða verða til þess að vafi leikur á hæfi hans
Engan má skipa í starf skiptastjóra nema hann lýsi sig fúsan til að taka starfann að sér og:
1. sé orðinn 25 ára gamall,
miðað við afmælisdag hans
…. sé lögráða og hafi ekki misst forræði á búi sínu
hér reynir takmarkað á það hvort skiptastjóri sé lögráða vegna aldurs, þar sem hann þarf að vera orðinn 25 ára og menn verða lögráða 18 ára skv. lögræðislögum. Í lögræðislögum er veitt heimild til að svipta menn lögræði. Skiptastjóri má ekki hafa misst forræði á búi sínu (bú hans má ekki hafa verið tekið til gjaldrþotaskipta. )
…sé svo á sig kominn andlega og líkamlega að hann geti gegnt starfanum
ef andleg eða líkamleg veikindi hrjá skiptastjóra getur hann verið vanhæfur um að gegna starfinu. Héraðsdómari þarf að ganga úr skugga um þetta.
[hafi hvorki hlotið fangelsisdóm fyrir refsiverðan verknað sem framinn var eftir að hann varð fullra 18 ára né orðið sannur að] 1) athæfi sem gerir hann óverðugan nauðsynlegs trausts til að geta gegnt starfanum…
sjá úrskurð landsréttar um þetta mál https://fj.is/?site=heimild&id=landsrettur.919. Sveinn andri vs. Arion banki.
hafi lokið embættisprófi í lögum….
Í leiðbeinandi reglum um skipun skiptastjóra er vísað til lögmanns en skiptastjóri þarf ekki að vera lögmaður heldur aðeins lögfræðingur.
Sérstakt hæfi skiptastjóra:
…yrði ekki vanhæfur sem dómari í einkamáli sem þrotamaðurinn eða sá sem á kröfu á hendur þrotabúinu ætti aðild að eða, ef félag eða stofnun er til gjaldþrotaskipta, í einkamáli sem stjórnarmenn eða starfsmenn sem hafa haft daglega stjórn félagsins eða stofnunarinnar með höndum ættu aðild að.
Sóknaraðili sagði að sveinn andri hefði rekið mál fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur í um þrjú ár fyrir aðila sem hafði sagt upp málflu tningsumboði hans. Sóknaraðili byggi á því að þessi háttsemi geri hann óverðugan nauðsynlegs trausts til að geta gegnt starfi skiptastjóra, sbr. 4. tölul. 2. mgr. 75. gr. laga nr. 21/1991. Bættu við að kvartað hefði verið undan honum vegna óhæfilegu tímagjaldi lögmannsins, fjölda skráðra tíma, fjárhæð þóknunar, drætti á skilum tímaskýrslna, töku greiðslu af fé búsins upp í áfallna þóknun án þess að gætt hafi verið að skilyrðum 2. mgr. 77. gr. laga nr. 21/1991, og greiðslu útlagðs kostnaðar þrotabúsins til aðila sem muni vera tengdur varnaraðila. Telji sóknaraðili framangr eint, ef rétt reynist, sýna fram á tjón fyrir kröfuhafa þess bús. Hafi sóknaraðili verulegar áhyggjur af svipaðri háttsemi við rekstur þrotabús Wow air hf. og byggi á því að þetta geri það að verkum að varnaraðili geti ekki notið nauðsynlegs trausts til að geta gegnt starfi skiptastjóra, sbr. 4. tölul. 2. mgr. 75. gr. laga nr. 21/1991. Hæstiréttur sagði bara…. Að öðru leyti hefur s óknaraðili ekki teflt fram málsástæðum sem gefa tilefni til að ætla að fyrir hendi séu atvik eða aðstæður sem eru til þess fallnar að d r aga megi óhlutdrægni varnaraðila með réttu í efa. Þá liggur ekki fyrir að varnaraðili hafi gerst sekur um athæfi sem geri hann óverðugan nauðsynlegs trausts til að geta gegnt starfi skiptastjóra, sbr. 4. tölulið 2. mgr. 75. gr. laga nr. 21/1991.
…Ef sýnt þykir að störf skiptastjóra verði umfangsmikil getur héraðsdómari skipað tvo menn eða fleiri til að gegna þeim og má þá víkja frá skilyrði 5. tölul. 2. mgr. um aðra en einn skiptastjórann. Skiptastjórarnir ákveða þá hvernig þeir skipta með sér verkum….
Er héraðsdómara því heimilt að víkja frá þeim skilyrðum um aðra en einn skiptastjóra og þar með skipa aðila sem ekki hafa lokið embættisprófi í lögum. Þegar Erlendur Gíslason lögmaður var skipaður skiptastjóri í þb. Baugs Group hf., kom fram gagnrýni um meint vanhæfi hans vegna tengsla lögmannsstofunnar sem hann vann hjá, við bæði þrotamann og kröfuhafa.71 Erlendur sendi erindi til héraðsdóms og óskaði eftir því að löggiltur endurskoðandi yrði skipaður sem skiptastjóri við hlið hans.72 Héraðsdómur varð við þeirri beiðni
Álitaefni, eiga að vera ríkari kröfur gerðar til skiptastjóra?
Í ljósi þeirra miklu hagsmuna sem kunna að vera fyrir hendi við skipti á þrotabúum og í ljósi þess að skiptastjóri er opinber sýslunarmaður,skv. 3. mgr. 77. gr. gþl., þá er vert að velta því upp hvort gera ætti ríkari kröfur um hæfi skiptastjóra. Í því sambandi mætti setja það sem skilyrði að skiptastjóri hafi starfað sem lögmaður í ákveðinn tíma áður en hann getur tekið að sér starf skiptastjóra. Þá kæmi einnig til skoðunar að skiptastjóri þurfi að hafa komið að skiptum á ákveðnum fjölda búa undir handleiðslu skiptastjóra, áður en hann uppfyllir skilyrði til að gegna starfi skiptastjóra. Til þess að einstaklingur geti öðlast málflutningsréttindi fyrir héraðsdómstólum, þarf hann að standast nokkur próf á vegum Lögmannafélags Íslands. Kæmi til skoðunar hvort einstaklingur ætti að þurfa standast tiltekið próf til að geta gegnt starfi skiptastjóra. Að mati höfundar ættu hæfisskilyrði skiptastjóra að vera strangari en nú er.
Hvað ef skiptastjóri er vanhæfur ?
- Skiptastjóri er vanhæfur v. tengsla við þrotamann eða fyrirsvarsmann löpersónu:
a. Ef upplýsingarnar koma fram um vanhæfi vegna tengsla skiptastjóra við þrotamanninn eða forráðamann lögpersónu sem er til gjaldþrotaskipta og hann biðst ekki sjálfur lausnar getur honum verið vikið úr starfi skv. 2. mgr. 76 gr gþl. með úrskurði héraðsdómara. - Ef skiptastjóri er vanhæfur vegna tengsla við kröfuhafa á hendur þrotabúinu
a. Ef það varðar bara afmarkað verk og hefur engin áhrif á önnur störf má skv. 5. gr. 75 gr gþl skipa annan mann til að leysa það tiltekna verk af hendi. Þetta getur gerst ef óvænt krafa kemur frá einhverjum sem gerir skiptastjóra vanhæfna.
i. Skiptastjóri þarf þá að láta héraðsdómara vita af vanhæfi sínu og óska eftir að annar maður leysi af þetta ákveðna verk. Héraðsdómari skipar þá mann sem fullnægir hæfisskilyrðum 2. mgr. 75. gr. gþl. með bókun í þingbók.
ii. Einhver sem var þrotamanni til aðstoðar á fyrri stigum, td sem aðstoðarmaður við greiðslustöðvun getur ekki komið til álita sem skiptastjóri vegna tengsla sinna við þrotamanninn sbr. b. lið 5. mgr. eml.
iii. Maður sem var umsjónarmaður við nauðasamningsumleitanir er ekki endielga vanhæfur sem skiptastjóri þar sem sá er skipaður umsjónarmaður af dómara og tengist ekki þrotamanni með þeim hætti sem b liður 5 gr eml fjalar um. Það getur líka verið hagræði þar sem hann hefur mikla vitneskju um aðstæður þrotamanns og kröfuhafa. Getur hins vegar verið óheppilegt ef umsjónarmaður ehfur haft meiri afskipti af málefni þrotamannsins en ætlast er til í gjaldþrotalögum