Verkföll Flashcards
(33 cards)
- Hvað er verkfall
o þegar starfsmenn leggja niður störf að einhverju eða öllu leyti
- Hvar í vinnulöggjöfinni er fjallað um vinnustöðvanir?
o II. kafla laga um stéttarfélög og vinnudeilur
o III. kafla laga um kjarasamninga opinberra starfsmanna
- Hverjir geta boðað til verkfalla?
o Stéttarfélög
- Hver sker úr um ólögmætt verkfall?
o Félagsdómur, sbr. 44. gr. laga um stéttarfélög og vinnudeilur
- Hvar er fjallað um óheimilar vinnustöðvanir?
o 17. gr. laga um stéttarfélög og vinnudeilur
Hvenær eru verkföll óheimil skv. 17. gr. SOV
Ef ágreiningur er einungis um atriði sem félagsdómur hefur úrskurðarvald yfir
Þvinga stjórnvöld til að framkvæma athafnir
Samúðarverkföll með ólögmætri vinnustöðvun
- Hvað er friðarskylda?
o Þegar kjarasamningar eru í gildi á að ríkja friður á vinnumarkaði. Þá er ólögmætt að hefja vinnustöðvun og sambærilegar aðgerðir.
- Hvað gerðist í Fd. Flugfreyjur
o Flugfreyjur fá það verkefni að selja varning um borð í flugvélum. KS á þessum tíma var ekki búið að ganga frá þessum parti, bókun við kjarasamning var látinn nægja. Atvinnurekandinn ætlaði einnig að endurskoða allt fyrirkomulag sölunnar í samráði við flugfreyju sambandið en gerði það aldrei, í stað þess að fá úr þessu skorið hjá félagsdómi ákvöðu þær að hætta að selja varning og taldi dómurinn það vera sambærilega aðgerð og þ.a.l. brot á friðarskyldu.
- Hvað gerðist í Fd. Árborgarmálinu
o Leikskólastarfsmenn sem voru ósáttir og ákváðu að segja upp saman. Árborg fer í mál og segir að hér sé friðarskylda og þetta sé sambærileg áhrif og verkfall. Þá var ósannað að stéttarfélagið hafi haft áhrif á þetta og þ.a.l. ekki brot á friðarskyldu
- Hvað eru sambærilegar aðgerðir í þessu samhengi
o Aðgerðir sem má jafna til vinnustöðvunar
t.d. hópuppsagnir og hægagangur
- Hvað gerðist í Fd. Samúðarverkfall?
o Deilt um hvort samúðarverkfall SSSK gagnvart RVK væri lögmætt. SSSK og RVK störfuðu eftir sérkjarasamning sem vísaði til KS Eflingar og RVK. Þannig voru kjör þeirra voru tengd við aðilan sem var í verkfalli og því dæmt ólögmætt
- Hvernig eru verkföll skipulögð?
- gr.
Kjósa um það - gr.
Senda á RSH og þeim sem hún beinist aðalega að
- Hvað gerðist í Fd. Primera air?
o Kjaradeilu var vísað til ríkissáttasemjar. Ríkissáttasemjari komst að þeirri niðurstöðu að málið varðaði hann ekki að svo stöddu og stéttarfélagið leitaði ekki frekari atbeina ríkissáttarsemjara áður en hann boðaði verkfall. Fd. komst að þeirri niðurstöðu að þetta hefði verið ólögmætt verkfall vegna þess.
o Sératkvæði um að aðili hefði ekki haft neina leið til að ógilda þessa ákvörðun og þannig væri ekki hægt að fallast á að verkfallsréttur sé að engu hafður
o Loksins tókst að boða fundinn en hinn aðilinn mætti ekki, RHS hefur ekki heimild til að láta sækja fólk, þarf að breyta því?
- Hvernig eru reglur um verkfallsboðun skv. lögum um stéttarfélög og vinnudeilur?
o senda til RHS og þeim sem hún beinist gegn með 7 sólahringa fyrirvara
- Hvernig er verkfallsboðun skv. lögum um kjarasamninga opinberra starfsmanna
o senda til RHS og þeim hún beinist gegn með 15 sólahringa fyrirvara
- Hvað gerðist í Fd. starfsmenn stjórnarráðsins
o FHSS senda tilkynningu til RHS og fjársýsluríkisins. Átti að senda fjármálaráðherra enda þarf alltaf að senda á viðsemjanda en ekki undirstofnanir þótt verkfallið beinist aðalega að gegn þeirri stofnun
- Hvað gerðist í Fd. Rafiðnaðarsamband íslands?
o Tvö stéttarfélög innan RSÍ sameinuðust í kjarasamningsviðræðum. Framkvæmd var sameiginleg atkvæðagreiðsla um verkfallsboðun og niðurstaðan ekki sundurliðuð eftir félögum – ólögmætt. Hvert stéttarfélag fyrir sig þarf að standa að atkvæðagreiðslu og boðun verkfalls
- Hvað gerðist í Fd. Sinfoníuhljómsveitin
o Ein atkvæðagreiðsla varðaði skæruverkföll, leggja niður störf á tilteknum tíma á tilteknu dögum, deilt um hvort það þyrfti að bera upp hverja skæru fyrir sig með einstaka atkvæðagreiðslum, ekki þótti svo
- Hvað gerðist í BHM málunum?
o Stéttarfélög OS var heimilt að framkvæma ótímabundnar og tímabundnar verkfallsaðgerðir gegn viðsemjanda í heil eða einstak atvinnurekendum sem tilheyra viðsemjanda. Jafnframt heimilt að einskorða atkvæðagreiðslu um verkfallsboðum sem beinist gegn einstaka vinnuveitenda. Ergo hægt að leggja niður störf á einstökum starfsstöðum
Sýslarinn þarf ekki að taka til allra sýslaranna. Getur bara verið sýslarinn í RVK
- Hvað gerðist í Rio Tinto málinu?
o deilt um hvort tiltekin hópur starfsmanna sem sinnti afmörkuðu hlutverki gæti talist til hóps félagsmanna í skilningi 15 gr. um laga um stéttarfélög og vinnudeilur. Þeir voru taldir vera hópur, enda sérstaklega fjallað um hann sem slíkan í kjarasamningi aðila og þeir einir sem þurfa að greiða atkvæði um vinnustöðvunina
- Hvað gerðist í Efling og hluti starfsmanna?
o Deilt um hvort framkvæmd atkvæðagreiðslu hafi verið lögmæt. Létu almenna atkvæðagreiðslu ná til tiltekins hóps en nýttu ekki 2. mgr. 15. gr. Dómurinn taldi þetta í lagi þar sem í ákvæðinu stendur „heimilt sé“ að taka ákvörðun með atkvæði tiltekins hóps.
Ekki til lengur
N/A
- Hvernig er verkfall í framkvæmd?
o Frekar líbó – vinna leggst niður, verkfalls verðir mæta og skipaður er verkfallsstjórn
- Hverjir mega vinna í verkföllum?
o Allir mega vinna eigin störf sem falla ekki undir verkfallið
o Meðlimir annara félaga og ófélagsbundnir svona semi en hefð fyrir því að ganga ekki í störf verkfallsmanna en ef þú ert á sama sviði máttu það
o Yfirmenn mega ganga í störf undirmanna sinna